Finnst þér tónninn ekki nógu góður?

Ef tónninn í píanóinu þínu er of harður eða ójafn yfir skalann er mjög líklegt að það þurfi að intónera píanóið.

Intóneringar eru virkilega vandasamar og eitthvert það listrænasta sem ég fæst við í starfinu; þetta snýst svo mikið um tilfinningu og innsæi. Til þess að vinna svona verk þarf mikið úrval verkfæra, hvort heldur til að slípa hamra eða vinna með hersluna; ýmsar stærðir og gerðir af nálum, efni til að mýkja eða herða tóninn og stoðir til að fyrirbyggja skemmdir vegna álags á hamra, stilka og fleiri hluti í spilverkinu.

Hvernig er intónerað?

Það þarf að passa að hamrarnir slái rétt á strengina og að þeir bjóði upp á fallegan tón.

Það sem er meðal annars gert:

  • Jafna út hæð strengjanna við hvern annan
  • Slípa hamra svo þeir endurheimti fyrra form
  • Máta hamra við strengina og passa að þeir slái rétt á
  • Vinna í filtinu með ýmsum verkfærum og efnum til að hafa áhrif á tónmyndun.

Mjög hörð áttund í diskanti

Eftir smá intóneringu