Það getur verið svolítið snúið fyrir fólk að velja heppilegt notað píanó. Hér eru teknar saman ráðleggingar sem ég veiti yfirleitt þegar fólk hringir í mig til að forvitnast um skynsemi tiltekinna píanókaupa. Ég vona að þetta gagnist þeim sem eru í píanóleit. Þetta eru mjög almennir punktar og ber ekki að oftúlka. Hafið í…
Eitt af því sem ber að varast er að kveikja á kertum ofan á píanóum. Þau geta sprungið þannig að vaxið leki inn í píanóið. Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri.
Ef rauðvín sullast ofan í píanó eða flygla getur það valdið alls kyns veseni. Ber helst að nefna skemmda strengi, hamra og skemmdir í spilverki. Það getur verið mikið vesen að þrífa svona bletti þar sem það er frekar erfitt að komast að þeim í mörgum tilfellum. Ekki geyma vínglös ofan á flyglum. Einhver mun…
20 milljón króna konsertflygil frá Steinway, Bösendorfer eða Fazioli. Það er augljóslega besti kosturinn. Ef við gefum okkur hins vegar að peningar séu takmörkuð auðlind þá vandast málið. Ef ætlunin er að kaupa hljóðfæri fyrir 1-2 milljónir króna myndu margir freistast til að kaupa flygil. Ég vil þó meina að í því tilviki geti verið…
Þegar ég byrjaði í bransanum var það „almennt viðurkennt“ að píanó þyrfti að bíða á milli umferða ef það var mjög falskt. Eða það hélt ég ca. fyrsta árið mitt í píanóstillingum. Píanó sem voru vel fyrir neðan rétta tónhæð voru þá hækkuð upp í rétta spennu og einhverjir dagar látnir líða á meðan píanóinu var…
„Hvenær á ég að láta stilla píanóið næst?“ er líklega algengasta spurningin sem stillari fær. Það er reyndar mjög misjafnt hversu ört þarf að stilla píanó. Yfirleitt er talað um að láta stilla píanó einu sinni á ári. Þá tölu má án efa rekja til þess að á einu ári gengur hljóðfærið í gegnum öll árstíðaskiptin…
Ég fæ mjög gjarnan spurningar um útveggi frá fólki. Margir hafa áhyggjur af því að píanó sé í nokkurri hættu ef það stendur við slíkan vegg. Ef útveggur er vel einangraður er ekkert því til fyrirstöðu að píanó standi við hann. Sé viðkomandi hús ekki mjög gamalt er þetta yfirleitt ekki mikið vandamál. Það er…